Tölvustoð er nýtt fyrirtæki sem byggir á traustum grunni en það var stofnað utan um tölvuþjónustu Munus ehf. Með því að aðskilja tölvuþjónustuna öðrum rekstri fyrirtækisins getum við eflt og bætt þjónustu okkar á þessu sviði. Með enn frekari sérhæfingu okkar og markvissri uppbyggingu á sviði tölvu- og tækniþjónustu, öryggri afritun gagna, hýsingarþjónustu og netþjónustu getum við betur mætt þörfum viðskiptavina okkar.
Tölvustoð mun áfram vera í nánu samstarfi við Munus sem sérhæfir sig í raflagnahönnun. Stofnandi og framkvæmdastjóri Tölvustoðar er Sigurjón Harðarson. Sigurjón hefur unnið við raflagnahönnun, kerfishönnun og uppsetningu tölvukerfa í áratugi og getið sér gott orð fyrir að veita viðsiptavinum sínum persónulega og trausta þjónustu.
|